Farfuglar
Einn sílamáfur sást í Arnarnesvogi. 2 tjaldar mættir að Héðinshöfða á Tjörnesi.
Flækingar dagsins /rarities of the day
NA-land:
Húsavík: Hrímtittlingur.
NV-land:
Patreksfjörður: 2 æðarkóngar.
SV-land:
Hafnarfjörður, Þöll: Brjósttittlingur og syngjandi krossnefur. Akranes: 3 æðarkóngar. Njarðvík: Kolönd (kk) og æðarkóngur (kk).
A Arctic Redpoll at Húsavík (NE). Two King Eiders at Patreksfjörður (NW). A Lincoln´s Sparrow and a singing Common Crossbills at Þöll/Hafnarfjörður (SW). A drake Ameican White-winged Scoter and a drake King Eider at Njarðvík (SW).
Nýjar tegundir á árinu 2013
Árið 2013 var ekki mjög gjöfult fyrir flækingsfuglaskoðar ef litið er til magns fugla og fjölda tegunda en það sem gerði árið áhugavert eru fimm tegundir sem voru að sjást í fyrsta sinn á Íslandi.
Þann 28. júní fannst roðaþerna Sterna dougalli í Óslandi á Höfn, lengi hefur verið beðið eftir þessari fallegu þernutegund. Roðaþernur eru lítill stofn beggja vegna Atlantshafsins. Mynd: Brynjúlfur Brynjólfsson.
Önnur nýja tegund ársins var lónamáfur Larus melanocephalus en hann fannst á Jökulsárlóni 6. okt og sást í nokkra daga á eftir. Lónamáfáfar urpu first í Evrópu (Ungverjalandi) 1940 en hefur svo fjölgað og verpir næst okkur á Suður-Englandi. Fuglinn sem sást við Jökulsárlón var 1. vetrar fugl. Mynd: Daníel Bergmann.
Þriðja tegundin sem búist hefur verið við að kæmi til Íslands fannst 20. okt rétt sunnan við Selfoss, mjallgæs Anser rossii. Mjallgæs er náskyld snjógæs og mjög lík henni í útliti, áberandi minni og með minna nef, þær eru Norður Ameriskar að uppruna. Mynd: Brynjúlfur Brynjólfsson.
En mjög óvænt fannst Ameriskur máfur á Höfn 17. nóv, heiðmáfur Larus glaucescens. Heiðmáfar eru mjög sjaldséðir í Evrópu enda eru heimkynni þeirra á vesturströnd Norður Ameríku og austast í Asíu. Mynd: Brynjúlfur Brynjólfsson.
Og að loku fannst svo brjósttittlingur Melospiza lincolnii sem er Amerískur spörfugl, í Gróðrarstöðinn Þöll í Hafnarfirði þann 7. des og er þar enn. Brjósttittlingar eru sjaldséðir í Evrópu. Mikil umræða varð um þetta fallega nafn sem hann fékk “brjósttittlingur”. Mynd: Brynjúlfur Brynjólfsson.
Farfuglar
115 álftir voru komnar á Lón (SA) í dag, en það er greinilega að byrja álftafarflugið, í janúar voru 12 fuglar (tvær talningar), 11. febrúar voru 22 fuglar og þann 17. feb 32. 17. feb sást grágæsahópur um 20 fuglar fljúga frekar hátt yfir Höfn og talið vera farfuglar.
Flækingar dagsins /rarities of the day
SA-land:
Vík í Lóni: Grákráka. Dynjandi í Nesjum: 4 hvinendur. Höfn, 4 gráhegrar. Djúpivogur: Gráþröstur.
SV-land:
Hafnarfjörður, Straumsvík: Ljóshöfðaönd (kk).
A Hooded Crow at Vík/Lón (SE). Four Common Goldeneyes at Dynjandi/Nes (SE). Four Grey Herons at Höfn (SE). An drake American Wigeon at Straumsvík/Hafnarfjörður (SW). A Fieldfare at Djúpivogur (SE).
Farfuglar
Sílamáfur sást utan við Ósland á Höfn í dag en fyrsti sílamáfur ársins sást í Njarðvík þann 4. mars.
binni@bbprentun.com
Archives
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- February 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- December 2013