Farfuglar

SA-land:
Mikið af skógarþröstum að koma inn á Suðausturland. Á túnum við Flatey á Mýrum sáust fyrstu tveir helsingjarnir, þar voru 120 heiðagæsir, 10 blesgæsir, nokkrar grágæsir og um 100 álftir. Nokkrir litlir álftahópar og um 100 fugla blesgæsahópur flugu yfir Einarslund á Höfn. Grænahraun í Nesjum um 200 skógarþrestir og 70 heiðagæsir. Á Þveit í Nesjum voru 2 skúfendur, 56 duggendur og um 70 rauðhöfðaendur. Fornustekkarot í Nesjum 2 grafandarpör
Landið:
Daltjörn á Seltjarnarnesi: Jaðrakan og lómur. Votmúli í Flóa, 32 heiðlóur.

bjugnefja@smart.is