Austur-Skaftafellssýsla er rómuð fyrir mikið og fjölbreytt fuglalíf, vorin og haustin eru hvað áhugaverðust en þá fer mikill fjöldi farfugla um svæðið og alltaf er von á óvæntum flækingsfuglum, á svæðinu hafa sést yfir 290 tegundir. Þessi tafla er í vinnslu en hún sýnir m.a. þær tegundir sem sést hafa í sýslunni, hvaða tegundir hafa sést í Einarslundi við Höfn, hversu algeng tegundin er og svo eru tölur um hversu oft sjaldséðar tegundir hafa sést í sýslunni og svo á landinu öllu. Þessar tölur þarf að taka með varúð en það er þó hægt að sjá umþaðbil hlutfallið af fuglum sem sést hafa í hér sýslunni af þeim heildarfjölda sem sést hefur á landinu.
Tegundir séðar í Austurskaftafellssýslu
|