Á vegum Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands eru talningar á áhveðnum svæðum og mun þeim vonandi fjölga í framtíðinni. Til að byrja með verður talinn Lónsfjörður og svo nokkur vötn og tjarnir.
 Lónsfjörður er þekktur fyrir að mikið sést þar af álftum frá því snemma á vorin og fram á haust. Á vorin þegar mest er má sjá nokkur þúsund álftir einnig kemur þar mikið af ýmsum öndum t.d. stokkendur, rauðhöfðaendur, toppendur og æðarfuglar. Í fjöllunum verpir mikið af fýlum og úti fyrir fjörukambinum er mikið af ýmsum sjófuglum. Undanfarin ár hafa sést svartsvanir á Lóninu mest 3 fuglar í einu. Svo hafa bæði hnúðsvanur og dvergsvanur sést þar.
Lónsfjörður 2006
Þveit í Nesjum er stærsta stöðuvatnið í Austur-Skaftafellssýslu. Fuglalíf er mikið á og við vatnið frá því snemma á vorin og fram á haust, mikið kemur af öndum á vorin og svo eru einnig oft all stórir felli hópar á sumrin. Á Þveit hafa sést mjög margar andategundir og má þar nefna Amerísku endurnar hjálmönd, hringendur og hrókendur.
Þveit 2006
Kríutjörn í Nesjum er í landi Miðskers þar er oft mikið fugllíf á vorin og sumrin en tjörnina leggur yfirleitt á vetrum. Við Kríutjörn verpa nokkur andapör, álftapör og flórgoðar á hverju ári. Fyrsti svartsvanurinn sem fannst í sýslunni var á Kríutjörn þar hafa m.a. sést taumgæs, hrókendur og taumendur.
Kríutjörn 2006
Bjarnnesrot í Nesjum eru mikið vatnasvæði sem nær frá Krossbæ og að Stekkhól. Innan þess eru bæði Þveit og Kríutjörn þó svo þau séu ekki talin með í þessari talningu. Við Krossbæ verpa álftir og gráhegrar eru þar alla vetur. Aðal svæðið er þó neðan við Bjarnaeskirkju og að Stekkhól og mjög mikið fugllíf þar sérstaklega á vorin bæði andfuglar og vaðfuglar. Þar hafa m.a. sést ljóshöfðaönd, taumendur og sefhæna.
Bjarnanesrot 2006
Talningar óháðar stöðinni
Vigfús Eyjólfsson telur fugla við Eyrabakka og Stokkseyri og má sjá niðurstöður talningana hér.
|