Fréttir

01.07.2010
Börn og fuglar

Ágæti félagsmaður 

Börn og fuglar – Við  munum skoða, telja, teikna og semja ljóð um fugla.

Laugardaginn 3.júlí verður Fuglavernd með fuglaskoðunarferð í Gróttu í samstarfi við  
Ferðafélag barnanna þar sem áherslu er lögð á að skoða, telja og teikna fugla og jafnvel semja ljóð um fugla. Fuglaskoðarinn og fuglaljósmyndarinn Jakob Sigurðsson mun fræða þátttakendur um fuglana sem verða á vegi okkar. Tilvalið tækifæri til að taka börn eða barnabörn með í fuglaskoðunarferð.  

 

Mæting við bílastæði út við Gróttu kl. 10.00.

Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
www.fuglavernd.is

<<Til baka

 

frumaibpbbhornafjordur
Fatbirder's top 500 Birding Websites