![]() |
Fréttir
10.06.2010 Núna í vor hefur verið gríðarlega mikið af kríum við Höfn. Mikið æti virðist vera innan fjarðar og er talað um að það sé loðna, trönusíli og 1. sumars síld. Núna síðustu daga hafa 1. sumars kríurnar verið að koma og mikið virðist vera af fugli sem ekki er í varpi. Gaman verður að fylgjast með hvernig sumarið kemur út. Líklegast er að kríurnar leiti á þetta svæði vegna mikils ætist og jafnvel ætisskorts á öðrum svæðum, all oft hefur kríum fjölgað mikið á Óslandssvæðinu í júlí.
|